
Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að
vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir
stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að opna efni
sem er verndað með WMDRM 10, OMA DRM 1.0, OMA DRM 1.0 framsendum lás og OMA
DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur
að biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum
réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins
efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun
efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki
er verndað með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem tilgreinir
hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia PC Suite
til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.Ef notaðar eru aðrar
flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt OMA
DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði fluttir með efninu. Einnig gæti
þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt opnunarlyklum þess ef
minni tækisins er forsniðið. Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár í
tækinu skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það takmarkað möguleikann
á að nota efnið aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
2. Tækið tekið í notkun
SIM-kort og rafhlaða sett í
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Þessi sími er ætlað til notkunar með BL-5CT rafhlöðu. Notaðu alltaf samþykktar rafhlöður
frá Nokia.
Sjá „Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia“, bls. 50.