
Stillingaþjónusta
Síminn þarf að vera rétt stilltur til að hægt sé að nota tiltekna sérþjónustu, líkt og
internetþjónustu, MMS, Nokia Xpress hljóðskilaboð eða samstillingu við netþjón. Nánari
upplýsingar um framboð má fá hjá þjónustuveitunni, næsta viðurkennda söluaðila
Nokia eða á þjónustusvæði Nokia-vefsvæðisins.
Sjá „Þjónusta Nokia“, bls. 10.
Þegar stillingarnar hafa borist í stillingaboðum birtist textinn Samskipunarstillingar
mótteknar ef stillingarnar eru ekki vistaðar sjálfkrafa.
Stillingarnar eru vistaðar með því að velja Sýna > Vista. Ef það er nauðsynlegt skaltu
slá inn PIN-númerið sem þú fékkst hjá þjónustuveitunni.