Nokia 5220 XpressMusic - Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

background image

Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia

Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um

að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndum söluaðila Nokia

og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í eftirfarandi skrefum:
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því

að rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé ekki

ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkennds

þjónustu- eða söluaðila Nokia. Viðurkenndir þjónustu- og söluaðilar Nokia kanna hvort

rafhlaðan sé ósvikin. Ef ekki er hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni

til verslunarinnar þar sem þú keyptir hana.