
Sending skilaboða
Senda skilaboð
Veldu Senda til að senda skilaboðin. Síminn vistar skilaboðin í möppunni Úthólf og
sendir þau svo.
Til athugunar: Táknið um að skilaboð hafi verið send, eða texti sem birtist á
skjá tækisins, merkir ekki að viðtakandinn hafi fengið skilaboðin.
Ef sendingin rofnar gerir síminn nokkrar tilraunir til að reyna að senda skilaboðin. Ef
það mistekst að senda skilaboðin eru þau áfram í Úthólf möppunni. Hætt er við
sendingu valinna skilaboða í Úthólf möppunni með því að velja Valkostir > Hætta við
sendingu.
Til að vista skilaboðin í Sendir hlutir möppunni velurðu Valmynd > Skilaboð >
Skilaboðastill. > Almennar stillingar > Vista send skilaboð.
Skipulag á skilaboðum
Síminn vistar móttekin skilaboð í möppunni Innhólf. Skipuleggðu skilaboðin þín í
möppu vistaðra hluta.
Til að bæta við, endurnefna eða eyða möppu velurðu Valmynd > Skilaboð > Vistaðir
hlutir > Valkostir.