Kortum hlaðið niður
Hugsanlegt er að á minniskorti símans séu þegar vistuð kort. Hægt er að hlaða nýjum
kortum niður af internetinu með Nokia Map Loader tölvuhugbúnaði.
Nokia Map Loader
Farðu á www.maps.nokia.com til að hlaða niður Nokia Map Loader og fá frekari
upplýsingar.
Áður en nýjum kortum er hlaðið niður í fyrsta skipti skaltu ganga úr skugga um að
minniskort sé í símanum.
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Kort fyrir upphafsstillingar.
Til að breyta kortaúrvalinu á minniskortinu skaltu nota Nokia Map Loader til að eyða
öllum kortum og hlaða niður nýjum, til að tryggja að öll kort séu úr sömu útgáfunni.
Kortaþjónusta í gegnum netið
Hægt er að stilla símann þannig að hann hlaði sjálfvirkt niður þeim kortum sem vantar
í símann þegar þörf er á.
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Kort > Stillingar > Símkerfisstillingar > Leyfa
netk.notkun > Já eða Í heimasímkerfi.
Til að koma í veg í fyrir sjálfvirkt niðurhal á kortum skaltu velja Nei.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi
þjónustuveitunnar. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Skipuleggjari
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
44