
Dagsetning og tími
Til að breyta gerð klukku, tímanum, tímabeltinu eða dagsetningunni velurðu
Valmynd > Stillingar > Dagur og tími.
Þegar þú ferðast um annað tímabelti velurðu Valmynd > Stillingar > Dagur og
tími > Dags- og tímastill. > Tímabelti: og flettir til vinstri eða hægri til að velja
tímabeltið á staðnum sem þú ert á. Tíminn og dagsetningin er stillt til samræmis við
tímabeltið og þannig birtist réttur senditími texta- eða margmiðlunarskilaboða.
Sem dæmi er GMT -5 tímabeltið fyrir New York (Bandaríkjunum), 5 klst. vestur af
tímanum í Greenwich, London (Englandi).