
Hringja
Veldu Valmynd > Stillingar > Símtals-stillingar og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Símtalsflutningur — til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki
flutt símtöl ef einhver valkostur sem útilokar símtöl er virkur.
Sjá
„Öryggi“, bls. 35.
● Lyklaborðssvar — til að svara mótteknu símtali með því að ýta í stutta stund á
hvaða takka sem er, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann
● Sjálfvirkt endurval — til að láta símann hringja sjálfkrafa aftur í númer ef símtal
mistekst. Síminn reynir 10 sinnum að hringja í númerið.
● Skýrleiki tals — til að auka talskilning þegar umhverfishávaði er mikill
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
32

● Hraðval — til að hringja í nöfn og símanúmer sem tengd eru talnatökkunum 2 til 9
með því að halda inni viðkomandi takka
● Biðþjónusta símtala — til að símkerfið láti þig vita af innhringingu meðan á öðru
símtali stendur (sérþjónusta)
● Lengd símtals — Veldu Á til að birta lengd símtals á meðan það er í gangi.
● Samantekt símtals — til að birta í stutta stund upplýsingar um lengd símtala að
þeim loknum
● Birta upplýs. um mig — til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt
(sérþjónusta). Til að nota stillingarnar sem þú samþykktir með þjónustuveitunni
velurðu Stillt af netkerfi.
● Lína til að hringja — til að velja símalínu fyrir símtöl, ef SIM-kortið þitt styður fleiri
en eina símalínu (sérþjónusta)