Nokia 5220 XpressMusic - Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

background image

Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

Þjónustuveitan getur sent hugbúnaðaruppfærslur beint í símann þinn (sérþjónusta).

Það fer eftir símanum hvort hægt er að velja þennan valkost.

Stillingar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

34

background image

Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi

þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið áður en

uppfærslan er ræst.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl,

fyrr en uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst. Taka skal öryggisafrit af

gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Stillingar fyrir uppfærslu

Það fer eftir símanum hvort hægt er að velja þennan valkost.
Til að leyfa eða banna uppfærslur á hugbúnaði og stillingum velurðu Valmynd >

Stillingar > Samskipan > Still. f. stjórn. tækis > Uppf. þjónustuveitu.

Beiðni um hugbúnaðaruppfærslu

1. Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar > Uppfærslur til að biðja um

tiltækar hugbúnaðaruppfærslur frá þjónustuveitunni.

2. Veldu Um núverandi útgáfu til að birta upplýsingar um hugbúnaðarútgáfu símans

og kanna hvort nauðsynlegt sé að uppfæra hana.

3. Veldu Sækja hugb. f. síma til að hlaða niður og setja upp hugbúnaðaruppfærslu.

Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.

4. Ef hætt var við uppsetningu eftir niðurhal velurðu Setja upp uppfærslu til að ræsa

uppsetningu.

Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við þjónustuveituna ef þú átt

í vandræðum með uppfærsluna.