
Takkalás
Til að koma í veg fyrir að ýtt sé á takkana í ógáti velurðu Valmynd og ýtir síðan á * innan
3,5 sekúndna til að læsa tökkum símans (takkaborðinu).
Takkaborðið er opnað aftur með því að velja Úr lás og ýta á * innan 1,5 sekúndna. Sláðu
inn lykilnúmerið ef beðið er um það.
Þegar takkarnir eru læstir er símtali svarað með því að ýta á hringitakkann. Takkarnir
læsast sjálfkrafa þegar lagt er á eða símtali er hafnað.
Aðrir valkostir eru Sjálfvirkur takkavari og Öryggistakkavari.
Sjá „Sími“, bls. 33.
Þegar tækið eða takkaborðið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera
neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.