
Öryggi vafra
Sumar þjónustur, líkt og bankaþjónusta eða vefverslun, kunna að notast við ákveðnar
öryggisaðgerðir. Við slíkar tengingar þarf öryggisvottanir og hugsanlega
öryggiseiningu sem kann að vera tiltæk á SIM-kortinu. Nánari upplýsingar fást hjá
þjóniustuveitu.
Til að skoða eða breyta stillingum á öryggiseiningu, eða til að skoða lista yfir heimilidir
eða notendavottanir sem er hlaðið inn í símann, velurðu Valmynd > Stillingar >
Öryggi > Still. öryggiseiningar, Heimildavottorð, eða Notandavottorð.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin
tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“
birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning
sé í tækinu.
16. Skipuleggjari
Vekjaraklukka
Til að láta vekjarklukkuna hringja á tilteknum tíma.
Stilltu klukkuna
1. Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Vekjaraklukka.
2. Kveiktu á vekjaranum og færðu tímann inn.
3. Ef stilla á vekjarann þannig að hann hringi á völdum dögum vikunnar skaltu velja
Endurtaka: > Kveikt og dagana.
4. Veldu vekjaratóninn. Ef þú hefur valið útvarpið sem vekjaratón skaltu tengja
höfuðtólið við símann.
5. Stilltu lengd blunds og veldu Vista.
Vekjarinn stöðvaður
Slökkt er á hringingunni með því að velja Stöðva. Ef vekjarinn er látinn hringja í eina
mínútu, eða ef stutt er á Blunda slokknar á vekjaraklukkunni í þann tíma sem hefur
verið valinn og síðan hringir hún aftur.
Dagbók
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Dagbók.
Dagurinn í dag er rammaður inn. Ef einhverjir minnismiðar eru skráðir fyrir daginn er
hann feitletraður. Til að skoða minnismiða dagsins velurðu Skoða. Til að skoða viku í